Íris Hólm & Arnar Jóns
Tökum að okkur tónlistarflutnining við öll tilefni!
Um okkur
Arnar Jónsson og Íris Hólm hafa starfað lengi sem tónlistarmenn og hafa þau bæði tekið þátt í fjölmörgum tónlistarverkefnum. Verkefni Arnars í gegnum árin eru m.a. Eurovision, Söngvakeppni Sjónvarpsins, Michael Bublé heiðurstónleikar, Frostrósir, Dívur auk fjölmargra annarra verkefna. Meðal verkefna Írisar má nefna Eurovision, Söngvakeppni Sjónvarpsins, Beyoncé heiðurstónleika, Freddie Mercury heiðurstónleika, Jólatónleika Siggu Beinsteins, Frostrósir, Afmælistónleika Gunnars Þórðarsonar auk margra annarra. Í dag skipa þau dúett og koma fram við hin ýmsu tilefni; brúðkaup, jarðarfarir, skírn, veislum, afmælum, árshátíðum, jólahlaðborðum, fordrykkjum o.fl.
Þjónusta
- Brúðkaup - athöfn, Tökum að okkur tónlistarflutning við brúðkaupsathafnir. 3-5 lög auk þess að við mætum með okkar eigið hljóðkerfi. Verð fer eftir staðsetningu athafnar og umfangi verkefnis.
- Brúðkaup - veisla, Tökum að okkur tónlistarflutning í brúðkaupsveislum, hvort sem er yfir borðhaldi eða til að koma fólki út á dansgólf. Verð fer eftir staðsetningu viðburðar auk lengdar tónlistarflutnings.
- Veisla - fordrykkur, Tökum að okkur að flytja rólega og fallegu tónlist í fordrykk, hvort sem fyrir einstaklinga eða fyrirtæki. Verð fer eftir staðsetningu viðburðar auk lengdar tónlistarflutnings.
- Veisla - borðhald, Tökum að okkur tónlistarflutning yfir borðhaldi í veislum, hvort sem er fyrir einstaklinga eða fyrirtæki. Verð fer eftir staðsetningu viðburðar auk lengdar tónlistarflutnings.
- Veislur - síðla kvölds, Tökum að okkur að rífa stemninguna í gang og fá fólk út á dansgólf, hvort sem er fyrir einstaklinga eða fyrirtæki. Verð fer eftir staðsetningu viðburðar auk lengdar tónlistarflutnings.
- Veislur - atriði, Tökum að okkur tónlistarflutning sem einstakt atriði, hvort sem er fyrir einstaklinga eða fyrirtæki. Verð fer eftir staðsetningu viðburðar auk lengdar tónlistarflutnings.
- Jarðarför, Tökum að okkur tónlistarflutning í jarðarförum. Verð er breytilegt og sveigjanlegt.
- Skírn, Tökum að okkur tónlistarflutning í skírnarathöfnum- & veislum. Verð fer eftir staðsetningu og umfangi verkefnis.
- Jólahlaðborð, Tökum að okkur tónlistarflutning á jólahlaðborðum fyrirtækja. Verð fer eftir staðsetningu viðburðar auk lengdar tónlistarflutnings.
- Sérðu ekki þá þjónustu sem þú leitar eftir?, Hafðu samband og við skulum sjá hvað við getum gert fyrir þig!
Hafðu samband
[email protected] · Tökum að okkur verkefni hvar sem er; hérlendis & erlendis.
Senda fyrirspurn
Íris & Arnar á ARVO
Fleiri tónlistaratriði á ARVO
Bókunarkerfi: ARVO